Ingibjörg Lind Karlsdóttir

50 ára
Nokkur orð frá pabba þínum í tilefni dagsins

Til þín ber ég
takmarakalausan kærleika
takmarkalaust þakklæti
takmarkalausa trú
fyrir það hvernig þú ert
og hefur alltaf verið

Þú gafst mér endalausa
gleði í æsku þinni
endalausa hamingju
og bjartsýni
og gerir það enn í dag

Ég elska og dáist að
börnunum þínum
barnabörnunum þínum og
litlu hundunum þínum

Þvílík móðir
þvílík amma
þvílíkur dýravinur

Ég samgleðst þér
með einstaklega
góðan lífsförunaut
og hans fallegu
börn

Þú ert það besta
í lífi mínu
bæði fyrr
og síðar

Megi gæfan og gleðin
fylgja þér og öllu
fólkinu ykkar beggja
um alla framtíð.

Þinn pabbi

(sem þú hefur gert að afa og langafa og tengdaföður og tengdaafa)


Matthildur Margrét Árnadóttir

Afmælisdagur: 29. sept fædd árið 2000

Sjö ára er eitt silkilín
svífur létt um hóla.
Matthildur heitir mærin fín
mikið fim að hjóla.

Bakar kannski brauð og snúð
býður til sín okkur
stúlkan Matta stolt og prúð
stórkostlegur kokkur.

Matthildur Margrét 9 ára

Létt og lipur hnáta
leikur sér um hóla
Yndislegust táta
elskar það að hjóla.

Marga á hún máta
mikið góð í spörkum
knattstelpan mín káta
klúðrar ekki mörkum.

Á sellóið nú sætt hún leikur
sannkallaðir ljúfir hljómar
Afi hlustar ern og keikur
Amma hlær og öll hún ljómar.

Ég nærri því næ ekki að fatta
að níu ára orðin er Matta.
Ein yngismær
okkur svo kær
Ég umhverfis hana vil snatta.

Matthildur Margrét 10 ára

Fallega Mattan mín fína
Þú fyllir nú heilan tug.
Láttu´ alltaf ljósið þitt skína
með leiftrandi dáð og dug.

Þú ert gleðin okkar og gæfa
Þú ert gáfuð og undurblíð
Þú ert Matthildur mikilhæfa
Þú ert myndarleg alla tíð.

Jóhanna Hildur Árnadóttir fæðingardagur: 6. júní 2008

Á björtum júnídegi
var borin í þennan heim
Já, aðeins fyrir ári síðan
ei gleymi ég deginum þeim

Jóhanna Hildur Árnadóttir
heilbrigt og hraustlegt barn.
sem leikur sér ljúft og brosir
og ljúfust bræðir allt hjarn

Enn eitt undrabarnið
sem eignuðust hjónin snjöll
Inga Lind og Árni Hauks
og yndisleg systkinin öll.

Til barna og barnabarna

Haukur Árnason
þriggja ára:

Sprækur er spiderman drengur
sperrtur um gólfið hann gengur
Hann þriggja' ára er
og þykir nú mér
ei þörf fyrir bleiuna lengur

Framtíðarsýn þegar Afi og Haukur fara á Arnarvatnsheiði að veiða:

Við veiðum í vötnunum saman
okkur vinunum finnst það svo gaman
Að setja í fisk
og sjóða' upp á disk
já, syngjandi glaðir í framan

Haukur Árnason  5 ára
16. apríl 2007

Fallegur drengur
fimm ára orðinn
Uppáhald ömmu
alltaf svo góður
Vandaður vitur
vinur hans afa.

Stæltur er strákur
stækkar nú óðum.
Skíðar og skautar
skokkar um brautir.
Veiðir í vötnum
vinur hans afa.

Í framtíð við förum
á fiskislóðir.
Skoðum og skynjum
skondnustu hluti.
Hamingju höndlum
Haukur og afi.

Afmæli Hauks 7 ára. 


Haukur og afi söfnuðu dósum og flöskum fyrir afmælið. Haukur fékk peningabréf upp á 3300 kr. Amma keypti peningabréfið af honum og hann setti þá í baukinn sinn og hyggst fjárfesta í LEGO kassa innan tíðar.

Til hamingju Haukur minn góður
hann orðinn er sjö ára skrjóður
Duglegur djarfur
dálítill skarfur
nú dósum hann safnar sem óður.

Fyllist nú brátt hans baukur
bráðgreindur ættarlaukur
Hann árangri nær
ömmu svo kær
öndvegis drengurinn Haukur.

Hrafnhildur Helga Össurardóttir

Afmæli: 23. mars fædd árið 1997

Stelpan hans afa  (sumarið 2000 3ja ára)

Skemmtileg stelpa
í skónum hans afa.
‍ ‍Hleypur um móa
‍ ‍hlær eins og engill.

Hrafnhildur Helga
heillandi stúlka
með útgeislun ríka
og athygli líka.

Uppáhaldið afa síns
augasteinninn mildi
lífinu gefur gildi.

Barna-barna börn

Tómas Árnason fæðingardagur: 12. júlí 2025

Hann Tommi er traustasti gæinn
Tiplar um allan bæinn
Hans bros er svo blítt
Bjart og mjög hlýtt
Lýsir upp liðlangan daginn.

Ylfa Sigurðardóttir Fæðingardagur: 22. ágúst 2026

Hún fæddist í áliðnum ágúst
Svo undurfalleg og fín
Möttu og Didda dóttir
Dásemdin mín.

Dökk er á brún og brá
Blíð og svo undursmá.
Eftirmynd ömmu sinnar
hennar Ingu Lindar minnar

Ylfa litli engill minn
Áfram dafni lengi
Langafi biður bænirnar
Um bæði gæfu og gengi.

Krútt-hundarnir hennar Ingu Lindar

Xavi Del-Caruni Dachshund fæddur 20. sept 2014

Pablo Del-Caruni Dachshund fæddur 29. ágúst 2015

(Pablo er dökki hundurinn og Xavi er sá ljósi)

Alltaf mig voffarnir elta
Þeir elska að eta og melta
Xavi er vaskur
Pablo er naskur
Að óboðnum gestum þeir gelta

Rakkarnir mínir rjóðir
Ráðsettir og góðir
Pablo etur pylsubita
Xavi má allsekki fita
Nú sofa þeir sætir og hljóðir