Radíovinna Raftækni
Það var þannig í gamla daga að ég kenndi ekki bara stærðfræði. Í Garðaskóla var boðið upp á valgreinar í 10. bekk og þar á meðal var RAFTÆKNI. Ég og vinur minn Ögmundur kenndum þessa valgrein og lögðum áherslu á að nemandinn lærði að nota lóðbolta og helstu íhluti rafeindafræðinnar, svo sem viðnám, þétta, spólur og mælitæki eins og fjölsviðsmæla um leið og við kenndum þeim eiginleika þeirra. Undirstöðuatriði um volt, spennu og viðnám. Einnig vorum við með námsefni um bylgjur og tíðni þar sem þau smíðuðu tíðnigjafa með lágri tíðni (astabil multivibrator).
Mest þótti þeim þó gaman þegar kom að því að smíða FM útvarp og FM sendi ásamt magnara fyrir heyranlega tíðni.
Fyrir gamla nemendur (og aðra) birti ég hér teikningu af einföldu FM útvarpi sem auðvelt er að smíða sjálfur. Ég upplýsi líka um þá fáu íhluti sem til þarf og hvar má kaupa þá.
Áhuga minn á radíómálum fekk ég eftir 9 ára aldur þegar faðir minn aðventistinn bannaði mér að hlusta á útvarp, enda ekkert svoleiðis tæki djöfulsins til á heimilinu. Þá kom ég mér í kunningsskap við upprunalegan stofnanda radíóbúðarinnar. Hann var þá með radióbúð í kjallara milli Austurstrætis og Hafnarstrætis. Hann seldi mér nauðsynlegt efni í AM krystal-útvarp með heyrnatækjum. Þessu kom ég fyrir í gormasettinu undir dívaninum sem ég svaf á sem og vír út í snúrustaur sem loftnet. Á þetta hlustaði ég fram til þess að ég var sendur á Hlíðardalsskóla þar sem öll tæki djöfulsins voru auðvitað bönnuð. Ég kom tækinu fyrir undir rúminu mínu þar og var einn af fáum nemendum sem hafði aðgang að umheiminum.
Eftir að ég var farinn að kenna í Garðabæ, kynntist ég mönnum í Félagi Radióamatöra. Ég gerðist félagi í því félagi og fór að smíða rafeindatæki of læra um þau. Þar lærði ég helstu reglur raffræðinnar og náði mér í starfsleyfi og kallmerki fyrir sendi og móttökustöð. Þetta var af gerðinni N sem þýddi að ég væri nýliði og kynni ekki nema takmarkað í morsi (eða aðeins 30 stafi á mínútu). Til að verða viðurkenndur radióamatör, þurfti maður hins vegar að standast próf upp á 60 stafi á mínútu. Þessari þjálfun í morsinu náði ég ekki og var því að lokum hafnað sem félaga í Félagi Radioamatöra. Ég hélt samt áfram að smíða og gera tilraunir með eitt og annað sem ég smíðaði upp á eigin spýtur. Eftir að við fórum að kenna rafeindatækni í Garðaskóla eignaðist skólinn smám saman ýmiss konar mælitæki og talsvert af íhlutum þannig að aðstaðan var nokkuð góð. Tæki, efni og tól voru geymd í sérstökum skápi í smíðastofunni. Eitt sumarið var svo brotist inn í skólann og meðal annars smíðastofuna, skápurinn brotinn upp og öllu stolið. Þetta voru töluvert mikil verðmæti. Ekki þótti rétt að leggja í stofnkostnað að nýju radióveri. Þannig endaði það ævintýri.
Þú getur notað brauðbretti eða lóðað þetta saman með mátulega stinnum vírum. Best er þó að koma rofunum fyrir á spjaldi.
Ég læt einnig fylgja með teikningu af mjög góðum og einföldum magnara ef þú vilt ekki nota heyrnatæki (headphones)
1. BK1068 with breaker-board. Panta hjá :
AK Modul-Bus Computer GmbH
Hans-Bökler-Alle 87
52074 Achen
Deutsland
Email: info@ak-modul-bus.de
2. Tveir eins póla snertirofar (Momentary)
3. Tveir tveggja póla snertirofar (Momentary
4. Tveir electrolytic þéttar (100uF og 47uF)
5. Tveir smáþéttar (10pF og 100nF)
6. Heyrnartæki Headphones (eða tenging við magnara)
7. Rafhlaða (Ein lithium ion 3-4,2volt hleðslurafhlaða) eða þrjár 1,5 volta AA
eða AAA rafhlöður.
Sjá meðfylgjandi teikningar
Fæst allt hjá Íhlutum hf (nema BK1068)